# HELGA + ANNA + ÓLÖF + DÍANA #
Dagsetning
23. febrúar 2012
10.07.2006 00:20:16 / Anna

Ný síða

Ný Síða í vinnslu..... ekki allt komið inn er eh að fikta ennþá :)

http://barbapabbi.bloggar.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 14:30:46 / Anna

er að koma Sumar??

Loksins sól 8) þannig að í dag er ég í frábæru skapi og ákvað að blogga smávegis! þetta sumar er auðvitað bara búið að vera illa viðrað og kalt og við stelpurnar erum búnar að nýta þær örfáu sólarglætur sem eru búnar að birtast í sumar og auðvitað er alltaf hlaupið beint í laugina og spjallað og látið sólina sjá um að gera okkur sætar =) þrátt fyrir leiðinda veðrið sem er búið að vera er ég nú samt búin að fara í tvær útilegur það sem komið er af sumrinu, enda finnst mér ekkert jafn skemmtilegt og að tjalda í náttúrunni og skemmta sér með góðum vinum... En nú eru aðeins 34 eða eiginlega 33 dagar þangað til við förum til mallorca og nú fer spennan að magnast verulega, svona sérstaklega þegar vont veður er og svona fer maður að ýminda sér okkur dömurnar  með kokteilana sína niðrá ströndinni að njóta okkar eins og við gerum best =) En nú er að koma löng fríhelgi og ég er í frí frá 3 á fimtudag  til 3 á mánudag.. JeI!! væri eflaustað fara í útileigu vær karlinn ekki á æfingum alla helgina, svona eins og vanalega.. en það eru írskir dagar á akranesi laaaangar svo.p þannig að það verður bara að hafa ofan af sér þessa helgi heima þá. En í gær fór ég að veiða með familíunni og Daníel. Pera var auðvitað tekin með og var hún í því að stela flotholtum og veiðidóti og hlaupa með það útí móa til að gá hvort hún gæti ekki fengið einhvern til að elta sig, hún er svo mikið æði. Mamma var líka að leika sér að fela sig eh staðar og flauta svo á hana og þar sem hún er svo hræðilega mikið frímerki við rassinn á mömmu fékk hún auðvitað taugaáfall yfir því að mamma væri týnd og hljóp í hringi þangað til mamma kom í ljós. Fengum tvo urriða, þeas pabbi og við ekkert. Reyndar ekki skrítið að ég hafi ekki veitt neitt því ég á mjög erfitt með  að leifa línunni að liggja úti, finnst miklu skemmtilegra að kasta svo það er það sem ég geri þegar ég fæ að ráða. Svo eftir veiðiferðina ákváðum við útí bláinn kl 8 að kíkja í bæinn. Fórum í tívolí, ég er reyndar búin að fara í öll tækin en maður getur víst aldrei farið of oft.... svo var rúntað niðra laugarveg og gefið öndunum =) Sif fór svo út í gær til L.A. að keppa í Miss Universe, svo nú verðum við öll að hugsa fallega til hennar og senda henni lukku:)... ég ætla bara að vona að þetta verði sýnt í imbanum því eg má ekki missa af þessu!! Ólöf var að setja einhverjar ÖRFÁAR myndir inn á trailið sitt svo endilega kíkjið... en njótið nú góða veðursins sem á að vera um helgina til hinns ýtrast því hver veit nema góða veðrið stoppi stutt....

Lifið heil,)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 17:23:24 / Anna

Anna Bloggar

Tvö blogg á einum degi, MET.... :) ég þarf víst lítið að segja frá helginni fyrst ólöf er búin að covera það. En af mér er það að frétta að ég er að vinna í flugeldhúsinu uppá velli og líkar það bara mjög vel, gengur reynar stundum hægt sem er óumflýjanlegt með 3 stelpur á færibandi.P en maður fitnar þó því það er verið að dæla í mann mat alla vaktina og er maður aldrei orðinn svangur þegar næsti matartími kemur og er ég stolt af því að tilkynna að ég er búin að þyngjast um 2 kíló síðan 1 júni : ) er að pæla í að gera svona fyrir og eftir myndir í sumar,) En þið sem eruð mér viðkomandi megið vita af því að verið er að pæla í útilegu þarnæstu helgi einhverstaðar á austurlandi. Fyrst Daníel, Jói og Kristján eru á landsliðsæfingu á Þorlákshöfn alla þá helgi er stutt fyrir þá að fara ef viljað er. Þetta væri svona eins og Húsafell í fyrra. Endilega hringið ef þið hafið áhuga.

En ég var að setja inn einhverjar nokkrar myndir frá útskrifarhelginni:) nenni ekki samt að setja allar í einu því það er eh bull að picturetrailinu, bull..

 Kveðja Anna


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 15:49:11 / ÓlöF

Útilega

 

 

 

Daginn! langt síðan ég hef gert eitthvað hérna , afsakið þið sem lesið þetta;)

Sumarið er komið og skólinn búinn og ég náði öllu jeijj!!

Síðustu vikur eru búnar að vera frekar busy hjá mér bara vinna, djamm, sumarskóli og reyna að hafa tíma fyrir vini og kærasta og ræktina en einhvernvegin er þetta ekki alveg að virka… reyna að púsla öllu…reyna og reyna J 

 

En síðustu helgi skelltum við okkur í útilegu ég og Anna og Jón og Danni, það var gríðarfjör þrátt fyrir veðrið. Við lögðum af stað á föstudagskvöldið og keyrðum upp í Skorradal, þar tjölduðum við og fengum okkur aðeins að súpa, reyndar voru sumir orðnir svoldið hressir í aftursætinu á leiðinni;) Morgunninn eftir vöknuðum við það að tjöldin okkar voru að fjúka í burtu , þannig að við pökkuðum saman og keyrðum í Borganes. Fengum okkur að éta og strákarnir horfðu á HM og við stelpurnar fórum í sundJ Eftir leikinn keyrðum við af stað Norður og enduðum á Blönduósi. Tjölduðum og grilluðum pulsur, síðan kom þessi svaka rigning og flugur sem voru að gera mig brjálaða og okkur langaði á Sauðárkrók á sveitaball , þannig að Anna hringdi í frænda sinn á reddaði gistingu og við hoppuðum upp í bíl, skildum tjöldin eftir og keyrðum á Sauðárkrók. Skelltum okkur á ball og Anna hitti fullt af fólki sem enginn af okkur hinum þekkti,,,, Daginn eftir tók þynnkan við og við keyrðum alla leiðina heim með smá stoppi að ná í tjöldin…J 

Skemmtileg ferðalag þetta, Langar aftur í útilegu strax!

 

Setti nokkrar myndir inná picturtrailið mitt Ólöf frá útilegunni og síðustu helgum;)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 13:51:04 / Anna

Til hamingju SIF :)

Vááá æðislegt, Sif orðin Ungfrú Ísland!! svo næst er það bara Miss Universe keppnin í LA. Til hamingju ástin mín!! :* hérna er ein mynd af vefnum þegar hún var krýnd,
gullfalleg....


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 19:16:20 / Anna

böhhhhh

Komnar Nýar myndir inná picturetrail hjá mér loksins, jeiii... það er reyndar bar allskonar bland en gaman af þó.. En síðustu helgi var farið í sumarbústað til Sigrúnar og Baldvins, Það var Shiny veður allann tíman og yndislegur bústaður!! Birgðir af áfengi teknar með upp í bústað sem kláruðust þó eitthvað heldur fljótt, einkum hjá sumum ,) hóst Sigrún....   En afengi var nú bara endurnýjað á laugardaginn í Selfossferðinni þannig að enginn skaði ske. Strákarnir fóru bara á pöbbinn að horfa á bikarleikinn og við í sund og nældum okkur í bikinífar á meðan =) svo þegar sundið var á enda tjekkuðum við á pöbbinum og löbbum svo sannarlega inn á vitlausum tíma því Liverpool var að jafna á síðustu mínútu og allt TRYLLTIST.... maður var hræddur um líf sitt og maður ekki lengi að forða sér út.  Þetta var bara æðisleg helgi og vonandi verða fleirri svona í sumar. Svo er strákurinn að útskrifast á föstudaginn og verður haldið upp á það með pompi!! Til Hamingju ástin mín :)

Kveðja Anna Panna


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 19:01:10 / Anna

Kjósa SIF

ALLIR AÐ KJÓSA SIF !!! Get ekki beðið eftir að fylgjast með Ungfrú Ísland á miðvikudaginn, hef tröllatrú á elskunni minni:) en skemmtu þér bara vel og ekkert stress !! 

http://www.ungfruisland.is/netkosning.php


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 13:33:24 / Anna

Gleðilegt sumar

Föstudagur í dag :) líður nú samt ekki mikið eins og það sé að koma helgi, er að vinna í dag hjá flugleiða skrifstofum og er að fara að vinna um helgina í Hólmgarði svo aftur hér uppfrá eftir helgi + próf. en síðasta helgi var æðisleg, Byrjaði á splash sem er náttúrulega bar eins og það er... allt troðið, ekkert súrefni og dansað allann tímann og þegar komið var heim voru hvítu skórnir mínir SVARTIR og fæturna líka. Þetta splash dæmi fer að verða þreitt, það er bara allt of troðið inn á þessum litla stað og manni líður bara illa...en Daníel var að flytja heim og fékk sér í glas í fyrsta skipti síðan í Ágúst ásamt liðsfélögunum. Sumir héldu áfenginu betur en aðrir, engin nöfn nefnd! Teitið byrjaði hjá Alla og síðan var haldið niðrí bæ. Ég er nú ekki mjög reynd í þessum bæjarmálum og stóð eitt mjög áberandi uppúr ferðinni. KAFFIBARINN! mæli stranglega með að þið kíkið þangað ef ykkur langar að líða eins og þið séuð af annari plánetu!! dísssses, ... það voru bara einhverjar furðuverur úr Reykjavík, klætt í verulega furðuleg föt, dansandi eins og geðsjúklingar við 6 mínútna sírulög. Ég sat á barstól upp við súlu og gapti meðan Danni og Alli dönsuðu í kring, gat ekki hætt að stara og því ekkert dansað þar 8|   Svo héldum við Danni, Véddi og Ása heim fyrr en hinir og áttum bar að fara inn að aftan heima hjá Alla. Byrjuðum á því að fara í vitlausa götu og reyna að brjótast inn í vitlaust hús. Greinilega ekki allir með fullu viti. Ég tók myndir í fjörinu en ástin mín hún Pera, voffinn minn át snúruna til að setja yfir í tölvuna. Þarf að redda því. Annars er ég bara búin að vera að hafa það gott og njóta frísins þangað til prófin koma. Bláa Lónið, Spreita mig í golfi, endaði samt með öskrum því ég virtist ekki hitta h******* kúluna í þetta skiptið meðan aðrir þrumuðu útí bláinn án neinnar áreinslu!! já þú veist hver þú ert... og svo bara liggja uppí rúmmi :D Svo er alltaf að styttast í mallorkaferðina okkar, :) nýasta nýtt er að strákarnir verða með okkur Ollu í viku og svo verðum við viku lengur í smá stelpufjöri, vúhúúú !! það verður bara æðislegt...8) en hafið það gott í sumar dúllurnar og látið ykkur líða vel í sólinni í sumar :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 23:28:32 / Anna

Já ég er lifandi....

Hæ ég er vöknuð upp frá dauðum :) það tók mikiðnn metnað að nenna að kvekja á tölvunni og byra að skrifa, alveg hætt að fara í tölvuna svo færslurnar eru eitthvað eftir því. Annars er eitthvað lítið að frétta frá mér bara, páskunum var 99% eitt upp í sumarbústað og mikið MIKIÐ borðað af sætindum og þvíumlíku og var vel slappað af og potturinn nýttur vel.. langar að stinga aftur af þangað strax :P Kannnski maður sé orðinn of vanur þessari afslöppun því venjulegur skóladagur og önnur hver helgi í vinnu virðist reyna svona svakalega á því í gær kikti ég á Sif og það entist eitthvað stutt því ég var að sofna, fór síðan heim um hálf sex og sofnaði, vaknaði svo hress í skólann næsta dag. Svaf aðeins einhverja 12 tíma. Elska samt þegar maður vaknar um miðja nótt óþreittur og þarf ekki að vakna strax, veltir sér, flækir táslurnar í sængina og heldur áfram að njóta sín... mhmmmm  En ég var að koma úr bláfjöllum rétt áðan og VÁÁÁÁ hvað það var brjálæðislega gaman!! langaði sko EKKERT heim kl 21:00 ... meira meira! Held ég hafi aldrei staðið mig svona vel áður þrátt fyrir margar ferðir upp í fjöll áður. Reyndar er ég svo mikil skræfa að ég var í  plóg eða bremsu fyrir þá sem ekki þekkja allann tímann og fékk svona hryllilegann krampa í báðar rasskinnarnar og veinaði eins og köttur, fólk hélt að maður væri stórslasaður og gargaði einhver úr lyftunni fyrir ofan mig vort það væri í lagi :P og ég, uhhh já ég er bara með krampa í rassinum....
 and yeeees tomorrow smells with hassberur 8|
en VÁ lenti í ýkt sniðugu um daginn, "ónýta myndavélin" mín var alltíeinu í höndunum á bróður mínum og hann var að taka sjálfsmyndir :D jei ég á myndavél.... en ég ætla nú samt örugglega að vera duglegri að bloggasvona þegar sumarið skellur á og þegar allt er í gangi og nú get ég líka sett myndir... : ) en ég er farin að skríða undir sæng, þreitt eftir daginn og með brenndann nebbaling.. Góða Nótt !!


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 14:18:16 / diana

stjörnu.. merki.. ha?:)

hmm.. hafið þið einhverntímann lesið um stjörnumerki ykkar/vina og fundist margt vera til í því sem verið er að segja? .. ég var að prófa að lesa um mitt merki og sum þeirra sem ég þekki vel og jam,, ætla bara láta mitt fylgja hér með svona uppá funnið;)  enjoy the reeding..

Krabbinn

Krabbinn er varkár og íhaldssamur tilfinningamaður. Hann fæðist í byrjun sumars og því ríkt í eðli hans að hlúa að nýgræðingi, rækta, hjálpa og ala upp. Aðhlynning er því lykilorð fyrir Krabbann. Þessi eiginleiki getur birst á margvíslegan hátt eftir aðstæðum. Krabbinn í viðskiptalífinu tekur að sér yngri skjólstæðinga og hjálpar þeim áfram og leikstjórinn í Krabbanum velur ungt fólk í lykilhlutverk.

Seigla og útsjónarsemi

Krabbinn er varkár og frekar hlédrægur um eigin hagi, en eigi að síður fastur fyrir og ákveðinn þegar á þarf að halda. Hann býr yfir hæglátri seiglu og er séður og útsjónarsamur. Varkárni Krabbans birtist þegar hann er að skoða ný mál. Hann opnar dyrnar til hálfs og tekur eitt skref fram á við til að kynna sér aðstæður. Síðan tekur hann tvö skref afturábak, dregur sig í hlé og skoðar málið í rólegheitunum. Hann vill hafa vaðið fyrir neðan sig og þreifa sig áfram. Það getur því tekið langan tíma að kynnast honum og þótt hann sýni áhuga bítur hann ekki endilega strax á agnið. Þegar hann hefur hins vegar tekið endanlega ákvörðun um að ganga í ákveðið verk berst hann með kjafti og klóm og gefst ekki auðveldlega upp.

Ábyrgðarkennd

Krabbinn hefur sterka ábyrgðarkennd og er yfirleitt traustur og samviskusamur. Hann vill leysa þau verk sem hann tekur að sér. Fyrir vikið er honum oft treyst fyrir ábyrgðarstörfum. Hann er einnig frumkvæður sem birtist í því að Krabbar taka oft að sér forystu á þeim sviðum sem þeir velja sér.

Íhaldssemi

Íhaldssemi Krabbans birtist m.a. í því að hann er fastheldinn á þær skoðanir sem hann temur sér eða á þá hluti sem honum eru kærir. Hann vill oft búa í gömlu húsi með sál, andrúmslofti og grónum garði. Það nýja og sálarlausa lítur hann hornauga. Íhaldssemin birtist einnig í sterkri öryggisþörf og því að hann safnar að sér hlutum, á erfitt með að henda því gamla og hugsar til þess að eiga varasjóð. Honum finnst óþægilegt að skulda eða búa við óvissu í sambandi við heimili, vinnu og fjármál. Oftast nær er Krabbinn mikill heimilismaður og fjölskylda, börn og nánir vinir skipta hann meira máli en gengur og gerist. Yngri Krabbar fela oft þessa eiginleika, enda ekki svalt að vera íhaldssamur heimilismaður á unglingsárum. Þá er hin fræga Krabbaskel sett upp, og svalt yfirborð látið hylja innri viðkvæmni.

Tunglsveiflur

Krabbinn er oft misjafn í skapi og framkomu. Karlmenn í merkinu eiga stundum til að vera hranalegir og fráhrindandi í framkomu, ekki vegna slæms upplags, heldur til að fela feimni. Tilfinningaríkum og næmum manni finnst oft að hann þurfi að verja sig og geti ekki hleypt hverjum sem er nálægt sér. Hann býr því til töff skel til að verja sig. Til að skilja skapgerð Krabbans er ágætt að líta á flóð og fjöru og kvartilaskipti Tunglsins. Tunglið er dimmt og ósýnilegt þegar það er nýtt en bjart og áberandi þegar það er í fyllingu. Skapgerð Krabbans er svipuð, stundum vill hann draga sig í hlé og vera einn með sjálfum sér, stundum er hann opinskár, hlýr og gefandi, jafnvel allra manna hressastur. Það getur því verið erfitt að reikna hann út. Eina stundina vill hann vera heima hjá sér, en þá næstu er hann reiðubúinn að fara út á lífið og rabba við fólk um daginn og veginn.

Náttúrubarn

Krabbinn er náttúrumaður, nýtur sín nálægt hafi eða vatni og þarf að hafa tré og gróður í umhverfi sínu. Sund og göngutúrar niður í fjöru eða út í sveit eru meðal þeirra íþróttagreina sem Krabbinn ætti helst að leggja stund á. Vatn og útivera hreinsa og endurnæra orku hans.

Þegar talað er um 'Krabbann' og 'Krabba', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Krabbamerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.

Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.

   

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 12:02:29 / diana

mmm...

mmm...namm namm,, súkkulaði og meira súkkulaði hehe ..
Tja páskarnir voru/eru bara frekar rólegir og fer mestur tíminn í að læra þar sem mar ætlar nú að reyna að ná lokaprófunum og sona,,
Í gær borðuðum við páskamatinn hjá Birnu-ömmu í rvk og var það hamborgarahryggur og svo ís og kaka í eftirrétt,, úff... var svo gott að ég þurfti á endanum að hneppa alveg heilum tveim tölum hehe;) eftir matinn festumst við við myndina Four weddings and a funeral, sem ég hafði aldrei séð og var hún bara helvíti góð. Breskur húmor klikkar aldrei!
En ég er komin með vinnu í sumar og er það uppí Fríhöfn og hlakkar mig bara alveg ágætlega til að fara vinna þar. Held það eigi eftir að verða ágætis reynsla að reyna að tjá sig á ensku við fólk sem kann valla ensku og reyna að koma þeim í skilning um gæði vörunnar og geta varla tjáð sig fyrir stressi o.s.frv... 8) hehe nei ætli þetta verði ekki bara stress í byrjun eins og vanalega þegar mar byrjar í svona ábyrgðarstöðum en sem betur fer förum við, sem viljum, á námskeið um snyrtivörur og svona áður en mar byrjar svo þetta á alveg eftir að reddast og á eftir að verða gott sumar;)
Fleira hef eg ekki alveg að segja einsog er svo að bara hafið það gott og gleiðilega páska..


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 20:55:26 / ÓlöF

!!!

Nýjar myndir á picturetrailinu mínu t.d stelpu hittingur hjá Önnu, Ungfrú suðurnes og Afmælis fyrir partý hjá mér fyrir árshátíðina þar sem ég bara gleymdi að taka myndir.  endilega skoðið ef ykkur langar.. takk fyrir mig og gleðilega páska :klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 15:53:39 / Anna

Til hamingju Sif:)

Jæja Ungfrú Suðurnes keppnin búin og auðvitað var Sif drottning kvöldsins enda var hún stórgæsileg :)  bloggið hefur verið í lámarki undanfarið en fannst þetta vera ástæða til að skrifa nokkur orð ! hérna koma myndir af vf vefnum...  :)






» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 14:23:59 / ÓlöF

**HeLLÓ**

Jeijj... loksins blogg eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir8) Núna er ég heima í langri eyðu afþví hún Rósa dönsku kennari rak mig og Ástu úr tíma!! fyrir að tala oggupínu lítið ég meina váá.. konan er stundum að fara yfirum! manni er farið að kvíða fyrir að fara í tíma hjá henni.. og ekki er þetta nú að bæta einkunnirnar NEI! maður fær aldrei hrós eða hvatningu hjá henni! Hún hrópaði bara ,,ÚT!! þetta er bara harkan sex" og skellti svo hurðinni.8| sjiiit. En já það þíðir ekkert að grenja yfir því. Vá ég er alveg að komast í sumarskap af allri þessari sól og auðvitað fer maður að hugsa um útlanda ferðina okkar!!! jæts Anna!!!:D hlakkar svo til..það eru bara 163 dagar þangað til hehe

æjj ætlaði að setja myndir hérna inná en kann það ekki eða þær koma ekki þannig að það kemur kannski seinna;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 01:04:16 / Anna

argasta GARG

ojjjjjjjjj... hata þetta fck blog central rusl!! var búnað vera að dunda mér við þvílíkt langann pistil og allt datt út. Hljótið að kannst við þetta!! ojj hvað ég er ógeðslega FÚL !  

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5